Beint í efni
Mínar Síður

Verslun/Vítamín og bætiefni/
Iceherbs Kalk og magnesíum 120 hylki

Iceherbs Kalk og magnesíum 120 hylki

53103126

Product information



Description

BEINABLANDA FYRIR VÖÐVA OG VIÐHALD BEINA

 Kalk & magnesíum er kröftug beinablanda sem inniheldur náttúrulegt kalk og magnesíum sem eru mikilvæg næringarefni fyrir heilbrigði vöðva, bein og taugakerfið.
 
Kalk er mikilvægasta steinefni líkamans og nauðsynlegt fyrir alla aldurshópa. Kalk er uppistöðuefni beina og tanna, nauðsynlegt fyrir starfsemi taugakerfisins og virkni vöðva. Kalk er tekið inn sem bætiefni til dæmis við kalkskorti og til að fyrirbyggja beinþynningu. Kalkið sem notað er í þessa blöndu er unnið úr náttúrulegum kalksteini.
 
Magnesíum er mikilvægt fyrir starfsemi líkamans og nauðsynlegt fyrir heilbrigði beina, eðlilega vöðvaslökun og heilbrigt taugakerfi. Magnesíum virkar vel gegn svefntruflunum og fótaóeirð og styður vel við stoðkerfið. Magnesíum citrate er það form magnesíums sem líkaminn nær að nýta vel.