Beint í efni
Mínar Síður

Verslun/Vítamín og bætiefni/
Iceherbs Engifer og C-vítamín 60 hylki

Iceherbs Engifer og C-vítamín 60 hylki

52000130

Product information



Description

NÁTTÚRULEGUR FLENSUBANI

C-vítamín & engifer náttúrulegur flensubani er öflug blanda sem styður við ónæmiskerfið. C-vítamín er öflugt og mikilvægt andoxunarefni sem stuðlar að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins, gegnir hlutverki í viðhaldi og myndun vefja. Líkaminn getur ekki framleitt C-vítamín sjálfur og því þarf að tryggja inntöku með fæðu eða fæðubótarefnum. Engifer hefur lengi verið þekkt sem virk lækningarjurt og fyrir áhrif sín á einkenni hálsbólgu og kvefs.

Fyrir ónæmiskerfið
C-vítamín er öflugt andoxunarefni sem gegnir mikilvægu hlutverki fyrir ónæmiskerfið. Vegna andoxunarvirkni C-vítamíns getur það barist gegn streitu, örverum og bakteríum og hjálpar líkamanum að verjast gegn sýkingum.

Húðin & framleiðsla kollagens
C-vítamín er mikilvægt næringarefni fyrir náttúrulega myndun kollagens í líkamanum og gegnir því mikilvægu hlutverki í viðhaldi vefja eins og brjósk og beina. Inntaka C-vítamíns skiptir einnig máli fyrir heilbrigði húðarinnar, þar sem kollagen er eitt helsta uppbyggingarefni húðarinnar sem viðheldur teygjanleika hennar. C-vítamín kemur einnig í veg fyrir að frumur líkamans verði fyrir ótímabærri öldrun.

Aðrir kostir C-vítamíns
C-vítamín gegnir einnig því hlutverki að styðja við taugakerfið, getur stuðlað að heilbrigði augna og aukið upptöku járns í líkamanum.